Græna trektin
Orkey ehf., Efnamótakan og fleiri söfnunaraðilar a úrgangi hafa á undanförnum árum lagt í mikla vinnu við að byggja upp gott kerfi fyrir söfnun á steikingarolíu fyrir lífdísilframleiðslu Orkeyjar.
Góð reynsla er nú komin á söfnun og móttöku á steikingarolíu bæði hjá matsölustöðum og almenningi. Á Akureyri sækja gámaþjónustufyrirtækin notaða steikingarolíu á veitingahús og mötuneyti en almenningur skilar henni inn á grenndarstöðvar í gegnum verkefnið Græna trektin - Orka úr eldhúsinu sem er samstarfsverkefni Norðurorku, Orkuseturs, Vistorku og Gámaþjónustu Norðurlands. Grænu trektina er hægt að nálgast í þjónustuveri Norðurorku eða í þjónustuanddyri Ráðhússins
Sjá einnig vefsíður Ekofunnel og Norðurorku og frétt af síðu Vistorku.