Orkusjóður auglýsir styrki til orkuskipta 2020
14. sep2020
Orkusjóður auglýsir styrki til orkuskipta 2020
Orkusjóður auglýsir innviða- og verkefnastyrki vegna áherslu stjórnvalda um orkuskipti og nýtingu endurnýjanlegrar orku. Heildarfjárhæð til úthlutunar er 180 m.kr.
Um er að ræða þrenns konar styrki
- Innviðastyrkir fyrir vistvæn ökutæki (s.s. heimsendingaþjónusta, bílaleigur, leigubílar og annar rekstur).
- Innviðastyrkir fyrir vistvæn ökutæki við opinbera staði (s.s. hleðslustöðvar við sundlaugar, heilsugæslur, skóla, hafnir/flugvelli, heimahjúkrun, félagaþjónustu, vaktbíla).
- Verkefnastyrkir fyrir rekstur í haftengdri starfsemi (s.s. fiskeldi, ferðaþjónusta, smábátar).
Umsóknarfrestur er til 20. október 2020.
Sjá nánar á vefsíðu Orkustofnunar